Að undanförnu hefur mikil umræða átt sér stað um ensku í íslensku samfélagi. Hröð tækniþróun og mikil fjölgun ferðamanna hefur haft áhrif á íslenska tungu og notkunarsvið hennar. Hvar stöndum við í dag og hvert er stefnan tekin?
Helga Hilmisdóttir, rannsóknardósent við Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, stýrir pallborðsumræðum á Fundi fólksins 2023 þar sem stórum spurningum er varpað fram um framtíð málsamfélagsins.
Þátttakendur í pallborðsumræðunum eru:
- Kristján Árnason, prófessor emeritus í íslensku
- Sabine Leskopf, borgarfulltrúi
- Stefanie Bade, doktor í íslenskri málfræði
- Sigrún Steingrímsdóttir, íslenskukennari við Kvennaskólann í Reykjavík
- Þórarinn Leifsson, leiðsögumaður og rithöfundur