Hvernig getur ungt fólk haft áhrif í samfélaginu, orðið áhrifavaldar? Fulltrúar ungmenna ræða ásamt fulltrúum frá skrifstofu Alþingis og landskjörstjórn þær leiðir sem eru í boði fyrir ungt fólk til að koma sínum skoðunum og áliti á framfæri og hvernig hægt er að hafa áhrif á ákvarðanatöku í málefnum sem varðar ungt fólk.
Elísabet Lára Gunnarsdóttir og Úlfhildur Elísa Hróbjartsdóttir fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna stýra umræðum.
Auk þeirra taka þátt:
Fulltrúar úr ungmennaráðum
Brynhildur Bolladóttir, landskjörstjórn
Tómas Leifsson, fræðslu- og upplýsingafulltrúi, skrifstofu Alþingis
Arnór Steinn Ívarsson, fræðslu- og upplýsingafulltrúi, skrifstofu Alþingis