HAFA SAMBAND
 
FUNDUR FÓLKSINS
c/o Almannaheill – samtök þriðja geirans
Urriðaholtsstræti 14
210 Garðabæ
Edit Template
Loading Events

« All Events

  • This event has passed.

Samfélagsvitund og lýðræði – hvernig eflum við þáttöku ungmenna í félagsstarfi?

15/09/2023 @ 10:00 - 10:45

Ísland og Norðurlöndin eru þekkt fyrir öflugt og jákvætt frístundastarf, og ungmenni hafa kost á að ganga í fjöldan allan af félögum og klúbbum. Slík félög eru oftar en ekki staður þar sem ungt fólk getur eflt sjálfstraustið, eignast nýja vini og sinnt áhugamálum sínum.
Því miður er sú þróun að eiga sér stað að færri ungmenni nýta sér þessi tækifæri. Á sama tíma fer andleg líðan ungs fólks versnandi og fleiri ungmenni upplifa sig útundan í samfélaginu. Þessi þróun er sérstaklega áberandi hjá ungu fólki í viðkvæmri félagslegri stöðu sem eiga í hættu á að enda á jaðri samfélagsins. Til að efla félagslega þáttöku ungmenna eru ýmsar hindranir sem þarf að yfirstíga.
Þverrandi félagsleg þáttaka ungmenna er sameiginleg áskorun Norðurlandana. Því hefur Norræna ráðherranefndin, í samstarfi við dönsku hugveituna Mandag morgen, ákveðið að leiða saman ungt fólk, sérfræðinga, fulltrúa félagasamtaka og valdhafa í samtal um málefnið á öllum fimm norrænu lýðræðishátíðunum. Hér munum við reyna að svara spurningunni: Hvernig virkjum við allt unga fólkið okkar og eflum þau félagslega?
Þátttakendur í málþinginu eru:Þröstur Flóki Klemensson frá Ungmennaráði Reykjavíkur,  Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Sigurþóra Bergsdóttir, framkvæmdastjóri Bergið Headspace. Fundarstjóri Jóhanna Birna Bjartmarsdóttir

Danska hugveitan Mandag Morgen mun hafa umsjón með þessu málþingi í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina og Norræna húsið.

Details

Date:
15/09/2023
Time:
10:00 - 10:45
Event Category:

Venue

Norræna húsið – Salur
Sæmundargata 11
Reykjavik, 102 Iceland
+ Google Map

Fundur Fólksins

© 2023 Fundur fólksins