Hvað rímar við strætó?
Hvernig rapp semur maður í strætó?
Hvað ætli sé hægt að koma mörgum röppurum í einn strætó?
Reykjavíkurdæturnar Steinunn og Þura Stína taka á móti unglingum Reykjavíkurborgar í Rapp Strætó við Norræna Húsið. Þar ætla þær að kenna gestum sínum allt sem þær vita um þessa vinsælu tónlistarstefnu sem fagnar um þessar mundir fimmtíu ára afmæli sínu! Þegar strætó„ferðin” tekur enda ættum við öll að vita meira um beat og rím, takta og flæði.