• Fundur fólksins, ráðstefna Almannaheilla, verður haldin í Hörpu daginn fyrir þingkosningar, 29. nóvember 2024 kl. 14-18. 
  • Leiðarljós Fundar fólksins er að efla lýðræði og samfélagsþátttöku með samtali milli frjálsra félagasamtaka, stjórnmálafólks og almennings.

Boðið verður upp á málstofur, fyrirlestra og pallborðsumræður auk þess sem fjöldi frjálsra félagasamtaka kynnir sína starfsemi. Í lokin fara fram stjórnmálaumræður með þátttöku þeirra flokka sem bjóða fram á landsvísu í þingkosningum.

Áherslan á ráðstefnunni í ár er að vekja athygli á mikilvægi almannaheillafélaga og frjálsra félagasamtaka og þeim verðmætum sem þriðji geirinn skapar fyrir allt samfélagið. Frjáls félagasamtök snerta líf okkar allra, styrkja samfélagið og takast á við fjölbreytt verkefni. 

Á ráðstefnunni verður m.a. rætt um áskoranir almannaheillafélaga og hvaða stuðning þau þurfa til að blómstra svo þau geti starfað sem mikilvægur stuðningur við samfélagið. 

Ríflega 600 skráð almannaheillafélög eru starfandi hér á landi og frjáls félagasamtök af ýmsu tagi eru margfalt fleiri. Félög sem starfa innan þriðja geirans, sem einnig hefur verið nefndur hagnaðarlausa hagkerfið eða félagshagkerfið, verða oft útundan í umræðunni. Með Fundi fólksins er markmiðið að gera starfsemi félaganna sýnilegri og varpa ljósi á mikilvægi hennar.

Fundur fólksins, ráðstefna Almannaheilla er styrkt af Reykjavíkurborg og Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Fyrr um daginn er haldin Lýðræðishátíð unga fólksins í Hörpu, þar sem unglingar fá fræðslu um lýðræði og samfélagsþátttöku. 

Almannaheill – samtök þriðja geirans – voru stofnuð sumarið 2008 til að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum fyrir almannaheillasamtök og sjálfseignarstofnanir sem starfa í almannaþágu, styrkja starfsumhverfi þeirra og ímynd, efla stöðu þriðja geirans í samfélaginu og koma fram fyrir hönd hans gagnvart opinberum aðilum og fjölmiðlum. Þá vinna samtökin að því að heildarlöggjöf verði sett um starfsemi frjálsra félagasamtaka, að skattaleg staða þeirra verði bætt, og að sýnileiki þriðja geirans í þjóðfélaginu verði aukinn.


Um Fund fólksins

   Við þökkum eftirtöldum stuðninginn